Styrkir farnir að berast.

∇ Flokkur:Annað |Engin ummæli |

FRÉTTIR

Sæl öll,

Vorum á pepp-fundi með fólkinu frá Höfuðborgarstofu á fimmtudaginn var og fengum staðfest að við fáum styrk frá þeim í verkefnið. Það er vonandi byrjunin á einhverju. Við eigum eftir að sækja um hjá töluvert af fyrirtækjum og eftir að fá svar frá einhverjum. Þið fáið að fylgjast með  hér á síðunni.

Einnig fengum við þær upplýsingar að tónleikarnir byrji kl. 19.30 og standa yfir til 23.00, og verða þeir á Klambratúni líkt og í fyrra. Það er ekki alveg komið á hreint hvaða hljómsveitir verða, en nöfn eins og Þursaflokkurinn, Hjaltalín og Bloodgroup hafa verið nefnd, ekki hanka mig á því samt.

Þar sem við verðum að gera þetta áður enn fer að rökva held ég að við ættum að reyna að byrja fljótlega upp úr kl. 20.00. Samkvæmt reiknivél veðurstofunar sest sólin kl. 21.14 þannig að persónulega held ég að klukkutíminn milli 20.00 og 21.00 sé málið.

Hvað haldið þið?

Kveðja

Hebbi

 

Færslur RSS | Ummæli RSS